• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
      • Persónuverndarstefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
    • Hafa samband
    • COVID-19
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Um Útlendingastofnun
  3. Greinar
  4. Enginn sendur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins

Enginn sendur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins

Details
11 Nóv. 2019

Vegna frétta af ástandinu í flóttamannabúðum í Grikklandi vill Útlendingastofnun árétta að endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Grikklands frá Íslandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar var hætt árið 2010 þar sem aðstæður í gríska hæliskerfinu voru taldar ófullnægjandi. Stofnunin hefur á undanförnum árum fylgst náið með aðstæðum á Grikklandi og enn sem komið er hefur ekki verið talin ástæða til að endurskoða framangreinda afstöðu.

Dyflinnarsamstarfið nær ekki til málsmeðferðar umsókna um vernd frá einstaklingum sem þegar hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki. Endursendingum þeirra sem fengið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hefur ekki verið hætt en þær eiga sér aðeins stað að undangengnu einstaklingsbundnu mati á aðstæðum umsækjanda.

Almennt um Dyflinnarsamstarfið

Ísland er aðili að Dyflinnarsamstarfinu en í því taka þátt öll 28 aðildarríki Evrópusambandsins auk Noregs, Íslands, Sviss og Lichtenstein. Markmið samstarfsins er að tryggja að eitt aðildarríki sé ábyrgt fyrir meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd og tryggja þannig skjótan aðgang umsækjandans að málsmeðferð þar sem tekin er afstaða til þess hvort hann eigi rétt á alþjóðlegri vernd.

Til að ná því markmiði setur svokölluð Dyflinnarreglugerð, sem hefur lagagildi í öllum aðildarríkjunum, fram ákveðin viðmið sem ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar. Komi í ljós að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi áður sótt um alþjóðlega vernd í öðru ríki er kannað hvort það ríki beri ábyrgð á meðferð umsóknarinnar.

Í hverju máli fer jafnframt fram sjálfstæð rannsókn á því hvort viðtökuríkið geti staðið við skuldbindingar sínar til að tryggja umönnun og málsmeðferð umsækjandans, áður en ákvörðun er tekin. Ef niðurstaða þeirrar rannsóknar er að réttindi umsækjandans séu ekki tryggð í viðtökuríkinu, tekur Útlendingastofnun yfir málsmeðferðina.

Engar endursendingar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til Grikklands og Ungverjalands

Endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Grikklands frá Íslandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar var hætt árið 2010 vegna þess að aðstæður í gríska hæliskerfinu voru taldar ófullnægjandi. Enn sem komið er hefur ekki verið talin ástæða til að endurskoða þá afstöðu. Hinn 15. október 2015 ákvað Útlendingastofnun jafnframt að láta af endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ungverjalands. Var það gert í ljósi mikils og skyndilegs álags á hæliskerfi landsins og vegna gagnrýni á aðstæður umsækjenda um vernd þar í landi.

Útlendingastofnun hefur síðan þá tekið þær umsóknir um alþjóðlega vernd sem þessi lönd bera ábyrgð á samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni til efnislegrar meðferðar hér á landi og veitt þeim alþjóðlega vernd sem á henni hafa þurft að halda.

Einstaklingar sem þegar hafa fengið alþjóðlega vernd

Dyflinnarsamstarfið nær ekki til málsmeðferðar umsókna um vernd frá einstaklingum sem þegar hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki. Endursendingum þeirra sem fengið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hefur ekki verið hætt en þær eiga sér þó aðeins stað að undangengnu einstaklingsbundnu mati á aðstæðum umsækjanda.

Mikilvægt er að gera greinarmun á þessum tveimur hópum og athuga að á meðan umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa ekki fengið svar við umsókn sinni og dvelja langflestir í flóttamannabúðum við erfið skilyrði þá hafa þeir sem veitt hefur verið alþjóðleg vernd í Grikklandi fengið útgefin dvalarleyfi með þeim réttindum sem þeim fylgja.

Fólk ekki sent í hættu

Sé ástæða til að ætla að umsækjandi yrði í hættu eða hans bíði á annan hátt óviðunandi aðstæður í því landi sem hann skal endursendur til eða ef ekki er talið öruggt að hann verði sendur áfram þaðan í slíkar aðstæður kemur ekki til greina að vísa umsækjanda til viðkomandi ríkis.

Um þetta er fjallað í 42. gr. útlendingalaga og í framkvæmd Útlendingastofnunar er gætt að aðstæðum í því ríki sem umsækjandi skal sendur til og aðstæður hvers umsækjanda athugaðar sérstaklega. Á það við hvort sem um er að ræða synjanir um alþjóðlega vernd, mál þar sem umsækjanda hefur þegar verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki eða umsóknir sem afgreiddar eru á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

  • Útlendingastofnun
  • Fréttir
  • Greinar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  • Ársskýrslur
  • Stefnur Útlendingastofnunar
    • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
    • Launastefna
    • Jafnlaunastefna
    • Tungumálastefna
    • Persónuverndarstefna
  • Skipurit
  • Gjaldskrá
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Samstarfssamningar
  • Lög og reglugerðir
  • Algengar spurningar
    • Dvalarleyfi
    • Alþjóðleg vernd
    • Vegabréfsáritanir
    • Íslenskur ríkisborgararéttur
    • Túlkanir og þýðingar
  • Hafa samband
  • COVID-19

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hr monitor 2020