• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
      • Persónuverndarstefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
      • Upplýsingar fyrir ríkisborgara Úkraínu
    • Hafa samband
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. -Þeir sem eru undanþegnir dvalarleyfi

Þeir sem eru undanþegnir dvalarleyfi

Meginregla laga um útlendinga nr. 80/2016 er að ríkisborgarar ríkja utan EES og EFTA sem ætla að dveljast hér á landi lengur en í þrjá mánuði þurfa að hafa dvalarleyfi. Þeir aðilar sem öðluðust rétt til dvalar án dvalarleyfis á grundvelli eldri laga halda þeim rétti.


Eftirtaldir aðilar eru undanþegnir meginreglunni um dvalarleyfi hér á landi skv. núgildandi lögum

Norrænir ríkisborgarar, sbr. 49. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016

Ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja, sbr. XI. kafla laga um útlendinga nr. 80/2016 


Eftirtaldir aðilar voru
undanþegnir meginreglunni um dvalarleyfi á grundvelli eldri laga. Þeir einstaklingar sem öðluðust rétt til dvalar án dvalarleyfis fyrir gildistöku nýju laganna halda þeim rétti.

Fæddur íslenskur ríkisborgari:

  • Einstaklingur sem fengið hefur íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu en hefur misst hann eða afsalað sér honum.
     

Íslenskt foreldri:

  • Einstaklingur sem á íslenskan ríkisborgara að foreldri ef hann hefur verið búsettur hér á landi og haft dvalarleyfi samfellt í tvö ár. Skilyrði er að:
    • Einstaklingur hafi verið í löglegri dvöl og haft dvalarleyfi í tvö ár og:
    • Foreldrið hafi haft íslenskan ríkisborgararétt í a.m.k fimm ár.
    • Ekki skiptir máli hversu gamall viðkomandi einstaklingur er, hann getur verið jafnt lögráða sem ólögráða.
  • Einstaklingur sem er lögráða og á íslenskan ríkisborgara að foreldri ef hann hefur verið búsettur hér á landi og með samfellt dvalarleyfi í fimm ár.
    • Þ.e. lögráða einstaklingur sem hefur dvalist hér löglega með dvalarleyfi í fimm ár og:
    • Foreldri viðkomandi er íslenskur ríkisborgari.
    • Ekki skiptir máli hversu lengi foreldrið hefur haft ríkisborgararétt, bara að foreldri sé með íslenskan ríkisborgararétt.
       

Hjúskapur:

  • Einstaklingur sem er í hjúskap með íslenskum ríkisborgara og hefur búið með honum hér á landi og haft dvalarleyfi samfellt í þrjú ár eftir stofnun hjúskapar. 
  • Ekki skiptir máli hversu lengi makinn hefur haft íslenskan ríkisborgararétt.
    • Öðlist maki íslenskan ríkisborgararétt, þarf einstaklingur ekki lengur dvalarleyfi ef hann hefur búið löglega með maka sínum hér á landi í þrjú ár frá stofnun hjúskapar.
       

Skráð sambúð:

  • Einstaklingur sem býr í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og hefur verið búsettur hér á landi og með samfellt dvalarleyfi í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar. Báðir aðilar skulu vera ógiftir og hinn íslenski ríkisborgari skal hafa verið með ríkisborgararétt í a.m.k  fimm ár.
  • Íslenskur ríkisborgararéttur
  • Grunnskilyrði
  • -Þeir sem eru undanþegnir dvalarleyfi
  • Ferill umsókna
  • Ríkisborgararéttur fyrir fullorðna
  • Ríkisborgararéttur fyrir norræna ríkisborgara
  • -Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir norrænan ríkisborgara
  • -Tilkynning norræns ríkisborgara, sem áður var íslenskur ríkisborgari, um að öðlast íslenskan ríkisborgararétt að nýju
  • Ríkisborgararéttur fyrir börn íslenskra ríkisborgara
  • -Ríkisborgararéttur fyrir barn íslensks ríkisborgara
  • -Barn ókvænts íslensks föður fætt erlendis 1998-2018
  • - Barn fætt í hjúskap íslenskrar móður og erlends föður 1964-1982
  • Missa eða halda ríkisborgararétti
  • - Endurveiting ríkisfangs
  • - Halda ríkisfangi
  • - Lausn frá ríkisfangi
  • Ríkisborgararéttur fyrir 18 – 21 árs
  • Algengar spurningar

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd
  • Persónuverndarstefna

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til föstudaga 9 - 14

Símaþjónusta:
Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

444 0900

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hrmonitor 2021