Þegar erlendur ríkisborgari hefur verið búsettur á Íslandi í ákveðinn tíma og uppfyllir skilyrði laga nr. 100/1952 um íslenskan ríkisborgararétt getur hann lagt fram umsókn um ríkisborgararétt.
Skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar eru tvenns konar, annars vegar búsetuskilyrði á grundvelli 8. gr. laganna og hins vegar sérstök skilyrði á grundvelli 9. gr. sömu laga. Hér má nálgast upplýsingar um þau grunnskilyrði sem uppfylla þarf til að eiga rétt á íslensku ríkisfangi.
Flokkar umsókna
Ríkisborgararéttur fyrir fullorðna
- Almenn umsókn einstaklinga 18 ára og eldri og barna þeirra
- Umsókn á grundvelli hjúskapar eða staðfestrar samvistar með íslenskum ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli sambúðar með íslenskum ríkisborgara
- Umsókn norræns ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli stöðu sem flóttamanns
- Umsókn á grundvelli dvalarleyfis af mannúðarástæðum
- Umsókn á grundvelli ríkisfangsleysis
- Umsókn fyrrum íslensks ríkisborgara
- Umsókn til Alþingis
Ríkisborgararéttur fyrir norræna ríkisborgara
- Umsókn norræns ríkisborgara
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir norrænan ríkisborgara
- Tilkynning norræns ríkisborgara, sem áður var íslenskur ríkisborgari, um að öðlast íslenskan ríkisborgararétt að nýju
Ríkisborgararéttur fyrir börn íslensks ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli þess að vera barn íslensks ríkisborgara
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir barn ókvænts íslensks föður fætt erlendis á tímabilinu 1. október 1998 til 30. júní 2018
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir barn fætt í hjúskap íslenskrar móður og erlends föður á tímabilinu 1. júlí 1964 til 30. júní 1982
Missa eða halda íslenskum ríkisborgararétti
- Beiðni um endurveitingu íslensks ríkisfangs
- Beiðni um að halda íslensku ríkisfangi
- Umsókn um lausn frá íslensku ríkisfangi
Aðrar umsóknir
- Tilkynning einstaklings á aldrinum 18-21 árs
Ýmsar upplýsingar
Umfjöllun um grunnskilyrði íslensks ríkisborgararéttar
Upplýsingar um feril umsóknar og afgreiðslutíma
Afgreiðslugjald. Athugið að umsókn er ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana.
Algengar spurningar. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.